Hjúkkuspjall
Bloggarar bekkjarins
Myspace-arar bekkjarins
25.01.2010 14:37:25 / hjúkka

Halló halló :)

Sælt veri fólkið ;)

Mig langaði bara til að óska ykkur öllum innilega til hamingju með útskriftina, gleðilegra jóla og gleðilegs nýs árs og þakka ykkur fyrir góðar stundir á liðnum árum :) Vonandi hafið þið það gott og að allt gangi ykkur í haginn í vinnunni, í fæðingarorflofinu eða í hverju því sem þið takið ykkur fyrir hendur þessa dagana :d

Ætla að láta nokkrar myndir fylgja með sem sýna kannski hversu einfaldur húmor minn er en vonandi koma þær ykkur til að brosa og helst hlægja :) ... ég stal þessu af brandarasíðu ...

Ég geri mér grein fyrir því að þessi síða okkar sé orðin mjög óvirk og jafnvel margir búnir að gleyma að hún sé til en ég vona samt að einhverjir kíki hingað inn ... ;)

bkv,
Ragga










» 6 hafa sagt sína skoðun

18.05.2009 10:04:23 / hjúkka

Ferðasjóðurinn

Vonandi eruð þið öll að njóta veðurblíðunnar sem er búin að vera síðan á rannsóknardaginn :)

Ég vil biðja alla þá sem ÆTLA MEÐ í útskriftarferðina OG tóku þátt í hjúkrunarsölunni, dósafrágangi og hlaðborðunum að senda mér reikningsnúmer og kennitölu á hrj3@hi.is eða sem póst á facebook :) Það verður þá lagt inn á ykkur einhvern tímann seinna í vikunni, ég er ekki með það á hreinu hversu mikill sá peningingur verður, það verður bara að koma í ljós :)

5 dagar í Tyrkland :)

Sumarkveðja, 
Hófí

» 26 hafa sagt sína skoðun

15.05.2009 10:17:13 / hjúkka

Rannsóknardagurinn

Jæja þá er rannsóknardagurinn mikli búinn og ég held að við séum öll sammála um það að hann var ekkert svo hræðilegur eftir allt saman. Þetta gekk mjög smurt fyrir sig og allir stóðu sig eins og hetjur. Dagurinn endaði svo á Lækjarbrekku og var alveg frábær mæting. Mig langaði til að þakka ykkur öllum fyrir frábæran dag sem og alla hina dagana seinustu 4 ár. Já ég veit, ógeðslega væmið :) haha
Við erum best :)

Kveðja
Tinna

» 7 hafa sagt sína skoðun

13.05.2009 19:26:05 / hjúkka

Blómapeningar

Hæ hæ!
Í fyrradag var tekin mjög ólýðræðisleg ákvörðun og vonandi verðum við Lilja Þórunn ekki hengdar fyrir það :)
Það varð víst smá hagnaður af blaðinu og ákveðið var að nýta hann í blómakaup. Ég ætlaði svo að endurgreiða þeim sem væru búnar að greiða inn á mig. Mætti því upp í skóla í dag með haug af 100 köllum en var kveðinn niður af nokkrum og ákveðið að láta þetta ganga upp í einhvers konar drykki eða annað á morgun. Sjáum allavega hvort við getum ekki gert eitthvað fyrir þetta á morgun, annars endurgreiði ég bara.

Kv. Fanný

» 17 hafa sagt sína skoðun

07.05.2009 17:08:51 / hjúkka

LÆKJARBREKKA IT IS!!

Jæja, Lækjarbrekka vann atkvæðagreiðsluna með miklum yfirburðum þannig að við erum búnar að panta borð þar kl. 19:30 á rannsóknardaginn (14.maí)!

Við eigum enn nokkur sæti upp á að hlaupa þannig að verið ófeimin við að skrá ykkur hér að neðan þó að þið hafið misst atkvæðarétt ykkar, við viljum endilega að sem flestir komi með okkur! :lol:

Hér kemur svo matseðillinn sem varð fyrir valinu (ef einhverjir borða alls ekki það sem er á honum þá hlýtur að vera hægt að redda því, trúi ekki öðru..):

Innbakaður humar með sveppum og spínati á saffransósu

Nautapiparsteik með ljúfri piparsósu

Ekta frönsk súkkulaðiterta með vanilluís

kr. 6.600

Ummmm fáum alveg vatn í munninn.....

Gangi ykkur vel á lokasprettinum, sjáumst hress og kát á rannsóknardaginn!! 8|

P.s. endilega leggið inn á Fanný (hún sendi okkur öllum e-mail) svo við getum keypt stóran blómvönd handa Ágústu og Ársæli!!


 Heiðurnar 8)


» 16 hafa sagt sína skoðun

03.05.2009 16:42:47 / hjúkka

ATKVÆÐAGREIÐSLA!!

Jæja, það er komið á hreint að við förum út að borða á fimmtudeginum, rannsóknardaginn sjálfan, þar sem lang flestir vilja það. Vonandi komist þið, Ragga og Dúnna, með okkur þá! :)

Við erum búnar að athuga með fullt af veitingastöðum og setjum hér inn þá 5 sem okkur leist best á. Við verðum að hafa svolítið hraðar hendur með að ákveða hvaða stað við ætlum á og hvað við ætlum að borða því við þurfum að panta borð í síðasta lagi á fimmtudaginn!!

Endilega athugið að á öllum þessum stöðum þarf allur hópurinn að borða það sama... því verðið þið að velja stað og matseðil sem ykkur líst best á og við pöntum það sem flestir vilja. Endilega líka hvetjið alla til að fara hérna inn á og greiða atkvæði!! ;)

1) Tapas
Tapas.is- Óvissuferð (7 réttir): 4.990 kr

2) Orange
Orange.is- Let's go Crazy (a.m.k. 5 réttir): 8.400 kr

3) Hereford
Hereford.is- Hópmatseðill, Menu 1-3: 5.200-5.900 kr

4) Lækjarbrekka
Laekjarbrekka.is- Hópmatseðill: 5.400-6.600 kr

5) Caruso
Caruso.is- Hópmatseðill: 3.900-5.900 kr



Hlökkum geggjað til!!!

Heiðurnar :)


» 49 hafa sagt sína skoðun

28.04.2009 14:21:09 / hjúkka

Rannsóknardagur!!!

Jæja stúlkukindur.

Vonandi gengur öllum vel með lokaverkefnið sitt, þetta er aaalveg að verða búið... ;)
En við vorum að spá, eins og fleiri, hvort að það væri ekki algjört möst að gera eitthvað í tilefni af rannsóknardeginum?!!

Okkar hugmynd er að fara út að borða og svo bara gera eitthvað skemmtilegt eftir það.
Bara spurning hvort að það sé skemmtilegra að gera það á fimmtudeginum 14. maí, á rannsóknardaginn sjálfan eða á föstudeginum 15. maí, daginn eftir rannsóknardaginn. Það eru náttúrlega kostir og gallar við báða dagana...

Þess vegna ætlum við að biðja ykkur um, ef þið eruð spenntar fyrir þessu, að skrifa það í komment, skrifa líka hvorn daginn þið viljið fara og koma með hugmynd að veitingastað sem þið viljið fara á...

Vinsamlegast skráið ykkur sem fyrst svo við getum farið að panta borð, síðasti séns er fimmtudagiurinn 7.maí!! :)

Vonumst til að sjá sem flestar,
gangi ykkur vel á lokasprettinum...

Heiðurnar :lol:


» 48 hafa sagt sína skoðun

22.04.2009 14:51:11 / hjúkka

Útskriftarferðin - breyting enn og aftur


Enn ein breyting en við græðum samt á henni. Flogið verður út 23/5 kl. 23:55 þannig að í stað þess að ferðast allan 24/5 þá getum við sofið á leiðinni út og nýtt daginn betur í sólbaði :)

Er ykkur ekki farið að hlakka til :)

Kveðja Ferðanefnd

» 3 hafa sagt sína skoðun

22.04.2009 11:40:40 / hjúkka

Líður að lokum.....

Er eitthvað af frétta af sameiginlegum sjóð bekkjarins eftir söluna, kökuboðið o.fl.?
Kemur eitthvað út úr því fyrir þá sem eru að fara í útskriftarferðina?? eða almennt alla??

Er líka ekki málið að gera eitthvað fimmtudaginn 14.maí (eftir rannsóknardaginn) í tilefni af skólalokum - þá geta allir tjúttað saman!!!!! Fara út að borða eða eitthvað?


» 20 hafa sagt sína skoðun

20.04.2009 14:02:50 / hjúkka

Til hamingju..


Til þeirra sem kláruðu í morgun - innilega til hamingju með að vera búnar!! Mögnuð tilfinning :)

Til þeirra sem eru að fara í barnahjúkrun - gangi ykkur rosalega vel og verið duglegar að lesa. Þetta er alveg að hafast hjá ykkur.

Svo er það bara ritgerð - útskriftarferð og útskrift!!

Kveðja Tinna

» 25 hafa sagt sína skoðun

17.04.2009 15:20:45 / hjúkka

Lausnaleitaverkefnin

Það kom upp umræða um að setja inn athugasemdirnar sem Hildur gerði á lausnaleitaverkefnin fram þar sem allir gætu séð ef það væri eitthvað í verkefnunum sem gleymdist eða mætti fara betur. Hvað segið þið um að setja hér í comment athugasemdirnar sem hún gerði, einkunin þarf ekkert endilega að fylgja með??

En gangi ykkur súper vel að lesa fyrir SÍÐASTA prófið okkar :)
Kv. Anna Dagbjört


» 8 hafa sagt sína skoðun

16.04.2009 14:36:57 / hjúkka

Útskriftarferð - nýjar fréttir

Brynhildur var að senda tölvupóst sem hljóðar svona:
Ég vildi láta ykkur vitar af þeim breytingum með heimhlugið 31.maí frá Tyrklandi.
Í stað þess að flogið verður frá Dalaman verður flogið heim frá Milar. 
Aksturinn lengist því um ca klst og við bætist stopp. Flogið er heim um kl. 16:50. 
Ég vona að þessi breyting sé ekki til vandræða fyrir ykkur. 
Ég held að sem fæstir séu komnir með farseðlana í hendurnar en 
ég endursendi þá með réttum flugtímum
Kær kveðja Brynhildur
Gangi ykkur öllum rosalega vel í prófunum...þetta er aaaallveg að verða búið :)

Kv. Ferðanefnd


» 1 hafa sagt sína skoðun

13.04.2009 11:53:12 / hjúkka

Jæja... próf.

Eigum við að ræða aðeins prófin? OKKAR SÍÐUSTU PRÓF SEM HJÚKRUNARNEMAR!!8|

Hafiði séð gömul próf í bráðahjúkrun? Eru þau alveg kreisí flókin eða hvað? FInnst Þorsteinn mjög ýtarlegur í sínu efni. Endilega deilið ef þið vitið eitthvað eða eruð með eitthvað.

» 10 hafa sagt sína skoðun

30.03.2009 12:28:52 / hjúkka

ÚTSKRIFTARFERÐ NÝTT!!!

Sælar stúlkur,

Nú þegar líða tekur að því að það þurfi að fara að borga ferðina viljum við hvetja ykkur allar til að fara sem fyrst og borga, en seinasti séns er 24.apríl!

Einnig hefur verið eitthvað vesen í sambandi við herbergjaskipanina. Við viljum því að fólk skrái sig hér að neðan inn á þennan lista. (Farið inn í vefstjórn og breytið færslunni). Athugið þó að þeir sem eru í 1 og 2 vikur geta því miður EKKI verið saman í herbergi!!! Þeir sem fara með maka verða að sjálfsögðu með þeim í herbergi.

Fjölskylduherbergi 1   (1 vika)
1. Hólmfríður Rósa Jóhannsdóttir
2. Heiða Lind Baldvinsdóttir
3. Heiða Björk Birkisdóttir
4. Vilborg Gísladóttir

Fjölskylduherbergi 2 (1 vika)
1. Kristrún Guðmundsdóttir (Dúnna)...hver vill vera memm??
2. Kristín Bára Bryndísardóttir
3. Lilja Þorgeirsdóttir(1 vika)
4. Nafn

Fjölskylduherbergi 3 (1 vika)
1. Ingibjörg Rós Kjartansdóttir
2. Kristín Bergsdóttir (2 vikur)
3. Tinna Dröfn Sæmundsdóttir (2 vikur)
4. Karen Ýr Sæmundsdóttir(2 vikur)


Fjölskylduherbergi 4 (2 vikur)
1. Hlín Árnadóttir (2 vikur)
2. Þórey Rósa Einarsdóttir(2 vikur)
3. Berglind Ólöf Sigurvinsdóttir(1 vika)
4. Olena Guðmundsson (2vikur)


Endilega skráið ykkur sem fyrst þannig að við getum látið Brynhildi vita :)

Kveðja Ferðanefnd


» 10 hafa sagt sína skoðun

29.03.2009 13:37:39 / hjúkka

Óvissuferð

ÓVISSUFERÐIN MIKLA !!

Hæhæ stelpur
Langaði að minna ykkur á óvissuferðina sem verður næsta föstudag, 3.apríl á vegum Curator. Þetta verður seinasti viðburður ársins og algjörlega tekinn með stæl. Við í Curator erum búnar að vera að skipuleggja þennan viðburð og satt best að segja verður þetta ógeðslega flott og mjög svo VEGLEGT!! Reynum að vera duglegar að taka okkur saman og mæta - þetta er seinasti viðburðurinn okkar sem hjúkrunarnemar!! Er ekki um að gera að reyna að lyfta sér aðeins upp svona rétt áður en við leggjumst yfir lokaverkefnin okkar :) satt best að segja hlakkar okkur rosalega mikið til að skemmta ykkur !! Set inn tilkynninguna sem er á
www.curator.is


SKRÁNING HEFST Í DAG KL. 15:00:00 !!!

NÚ ER UM AÐ GERA AÐ VERA SNAR Í SNÚNINGUM OG SKRÁ SIG TIL LEIKS. ENGAR UPPLÝSINGAR VERÐA GEFNAR NEMA MÆTING ER KL. 16:00:00 Í EIRBERGIÐ GÓÐA.

GOTT SKAP ER ÞAÐ EINA SEM ÞARF AÐ HAFA MEÐFERÐIS...

ENDAÐ VERÐUR Í BÆNUM OG VIÐ SJÁUM UM ALLA DRYKKI, MATARFÖNG OG SKEMMTUN.

HLÖKKUM TIL AÐ SJÁ YKKUR
VIÐ ENDUM MEÐ STÆL :*)

KV. STJÓRNIN SEM KVEÐUR Á FÖSTUDAGINN

» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 24
Heimsóknir
Í dag:  51  Alls: 162255
Dagatal
febrúar - 2012
S M Þ M F F L
1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829
FyrriNæsti