Hjúkkuspjall
Bloggarar bekkjarins
Myspace-arar bekkjarins
31.03.2008 12:35:01 / hjúkka

Samkoma BS nema og kennara

Ágætu nemendur hjúkrunarfræðideildar 

Dagana 1. og 2. apríl kl. 12-13 langar hjúkrunarfræðideild að bjóða BS-nemendum
sínum til samkomu til að ræða um námið og það sem er á döfinni í deildinni. Einnig
er þetta kjörið tækifæri fyrir nemendur og kennara deildarinnar að hittast og eiga
saman góða stund. Mun deildarforseti, formaður námsnefndar og fulltrúar nemenda á
hverju ári vera með stuttar framsögur. Í framhaldi verður opnað fyrir spurningar og
umræður. Það er von okkar að sem flest ykkar sjái sér fært að mæta. Boðið verður upp
á léttar veitingar.

Fundirnir fara fram í st. C-103 í Eirbergi.

Dagskrá:

1. apríl kl. 12-13
Fundur með 3. og 4. ári
Sóley S. Bender, deildarforseti
Páll Biering, formaður námsnefndar
Fulltrúi nemenda á 3. ári
Fulltrúi nemenda á 4. ári
Fyrirspurnir og umræður

2. apríl kl. 12-13
Fundur með 1. og 2. ári
Sóley S. Bender, deildarforseti
Páll Biering, formaður námsnefndar
Fulltrúi nemenda á 1. ári
Fulltrúi nemenda á 2. ári
Fyrirspurnir og umræður

Gleðilega páskahátíð!

Sóley S. Bender, deildarforseti
Páll Biering, formaður námsnefndar

» 4 hafa sagt sína skoðun

30.03.2008 20:44:31 / hjúkka

Skráning í námskeið

Sælar.
Vitið þið hvernig við eigum að skrá okkur fyrir næsta ár?
Hvað ákveður það hvort við förum í 12 eða 16 ein. lokaverkefni?
Eigum við að vera í þessum námskeiðum flestum bæði á haust og vorönn? - þá eru einingarnar nú annsi margar báðar annirnar....  Ég er allavega alveg úti á þekju í þessu - vonandi er einhver með meira viti en ég sem getur sagt mér hvað snýr upp og hvað niður í þessu;)
Kv. Hafdís


» 4 hafa sagt sína skoðun

11.03.2008 15:07:08 / hjúkka

Málþing Brynju á fimmtudaginn

 Á dögunum stofnaði alþjóðanefnd læknanema í samstarfi við hjúkrunarfræðinema fræðslu- og forvarnarfélagið Brynju. Markmið Brynju er að sinna fræðslu og forvörnum á ofbeldi gegn börnum. Okkar fyrsta verk er að halda málþing um efnið og verður það haldið fimmtudaginn 13. mars kl 19 í Öskju. Meðal fyrirlesara verða barnalæknar, fulltrúar frá barnahúsi og barnaverndarnefnda sem og einn af stofnendum Blátt áfram. Farið verður yfir tilkynningaskylduna, verklagsferla innan spítalans, starfsemi Blátt áfram og margt fleira.

 Vonumst við eftir góðri þátttöku og líflegum umræðum.  Ekki skemmir fyrir að þarna verður hægt að slá saman áhugaverðum fyrirlestrum og kvöldverði því veitingar verða á boðstólnum frá Ölgerðinni og Quiznos.

 Kæru félagar í hjúkrun, látum ekki okkar eftir liggja og mætum J

 Kveðja

 Orri og Þórey Rósa hjúkrunarfræðinemar

Kristín María og Hjörtur Læknanemar


» 3 hafa sagt sína skoðun


Heimsóknir
Í dag:  25  Alls: 126285
Dagatal
mars - 2010
S M Þ M F F L
123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
28293031
FyrriNæsti