Hjúkkuspjall
Bloggarar bekkjarins
Myspace-arar bekkjarins
26.09.2008 11:10:24 / hjúkka

Eigum við ekki bara að geyma kaffitímann...?!

Nokkuð hefur borið á því undanfarið að kennarar leitast eftir því að klára fyrirlestur á kostnað 5 mín pásunnar. Þó ætíð sé ætlunin að hætta fyrr og taka þá 20 mínútna pásu í lokin.

Nú veit ég að fyrirlestrum hjá okkur er lokið en ekki er ráð nema í tíma sé tekið og því getur það varla talist vitlaust að huga að fyrirlestrum eftir jól. -Segir konan sem er farin að búa til jólagjafir..Jæja!

Nei ég segi nú bara svona. Ég skrapp í IKEA um daginn og sá þar þessar fínu veggklukkur í ofurstærð á ofurlágu verði. Ég held að það sé alveg grundvöllur fyrir því að bekkurinn hendi saman í sjóð (ca 100kall á mann) svo festa megi kaup á slíkri klukku og hengja hana aftast í stofuna (því kennarar okkar eru nú ekki þekktir fyrir að horfa á litlu klukkuna á bak við þá þó hún BLASI við okkur, ). Þessi klukka er hins vegar af þeirri stærðargráðu að þegar komið er að pásu ætti það ekki að fara fram hjá neinum..sama hversu nærsýnn viðkomandi kann að vera.

Við gætum svo bara keypt nammi og kók fyrir afganginn ef einhver yrði...!


Bestu kveðjur!

Liljan

Einkahúmor á síðustu metrunum...

» 13 hafa sagt sína skoðun

25.09.2008 14:51:17 / hjúkka

Skiptinám til Norðurlandanna, umsóknarfrestur til 7. október

Langar bara að segja frá styrkjunum sem eru í boði fyrir okkur frá Nordlys, en við getum farið í skiptinám í Barnahjúkrun (verknámshlutanum). Það kom tölvupóstur frá skrifstofunni í dag um þessa styrki. Það þarf að sækja um með því að fylla út og skila eyðublaði (sem er hægt að fá á skrifstofunni) og henda með því námsyfirliti/einkunnum.

Þessir styrkir voru ekki fullnýttir í fyrra (kannski vegna þess að margir vissu ekki að þetta er í boði), svo endilega sækið um:o Kata, Lilja Þórunn og ég fórum í fyrra til DK og það var mjög gaman, góð reynsla og skemmtileg tilbreyting frá LSH umhverfinu. NB það er ekki eingöngu farið eftir einkunum þegar kemur að velja þá sem fara út, oft er bara dregið úr potti með nöfnum umsækjenda. 

Það er einnig hægt að fara út án þess að hafa þennan styrk en þá bara pungar maður út fyrir þessu sjálfur og fær aðstoð við að finna pláss (kannski ekki besta hugmyndin miðað við ástandið núna, veit :) En margir hafa farið út án þess að hafa styrk.

Annars, geggjað hlaðborð áðan, heyrði með öðru að þetta hefði verið besta hlaðborðið í áraraðir! ;)


Kveðja
Þórey (alþjóðanefnd)

» 10 hafa sagt sína skoðun

22.09.2008 12:15:19 / hjúkka

HLAÐBORÐ!!!!!

Hér er listinn yfir þá sem vilja taka þátt í hlaðborðinu. Til að fá yfirsýn yfir réttina viljum við að þið skráið hvað þið ætlið að koma með.  Einnig viljum við að hver og einn komi með eina af eftirtöldum flöskum.

Coca cola 12 skt., Coca cola Light 13 stk., Kristall10 stk., Fanta/Appelsín 5 stk., Sprite 5 stk.,  Sprite  Zero 5 stk.

Þið skráið ykkur inn, farið í Breyta færslu, skráið hvað þið ætlið að koma með í þessa fínu töflu og vistið að nýju.

Anna Dagbjört

 Heitur kjúklingaréttur, maregnsterta, coca cola

Júlíana

 

Anna Margrét

 Snittur, kleinur, sprite

Katrín

 2x rúllutertubrauð með túnfisksalati, 2x frönsk súkkulaðikaka, coke light

Áslaug Anna

 Ostakaka, vínber, kex og osta - appelsín

 

 

Berglind ólöf

 2 baberuth kökur + kristall

Kristrún G.

Jarðarberjamarengsterta

Súkkulaðikaka - kók


Berglind Ósk

Skinkubrauðterta,heitur brauðréttur + Coca cola

Kristrún M.

 2 heitir brauðréttir m. beikon, gráðosti og ferskjum. Kristall

Björg Kristjáns

frönsk súkkulaðikaka, púðusykursterta, rjómi 1 kristall 

Lilja Þorgeirs

 Ostakaka, spínatsalat og ritz kex, kristall

Björg S.

 

Lilja Þórunn

2 skyrtertur, Coca cola Light

Bryndis

 

Margrét

 1 heitur réttur með hrísgrjónum og rækjum + túnfisksalat og ritz kex. Appelsín

Elísabet

Marengsterta, heitur brauðréttur (2 rúllur) og Kristall 

María

marensterta með súkk.rúsínum og ostakaka og appelsín 

Fanny

 Danskar frikadellur, kristall

Olena

 Rúllaðar Faitas pönnukökur með ostafyllingu. Ostar+ brauð. Kristal.  

Guðrún Þóra

 marengsterta með súkkulaðirúsínum og kanilsnúðar. appelsín.

Ragga

Súkkulaði-rjóma-rice crispies terta, kalt pasta og sprite

Hafdís Jóna

2 heitir brauðréttir (skinka, aspas), +Kók

Sara

 skinkuhorn + coke light

Heiða Lind

 Lasagne og ostasalat og brauð + kristall+

Sonja

2 bananabrauð + appelsín

Heiða Björk

 Heitur brauðréttur og pasta (kalt) + kristall

Steinunn

 

Helga G.

 

Unnur

Gulrótarterta og skyrterta
+ Kristall

Helga Bender

Marensterta,kaldur kjúklingaréttur + Coca Cola

Tinna

 Hrísgrjónaréttur+ristað brauð, ávaxta- og grænmetisbakki + kók

Herdís

2 kaldir brauðréttir +  kristall            

Vilborg

 Tabulleh-kalt, skinkutortillur-heitt. + Sprite 0

Hildur

 2x franskar súkkulaðikökur +kók

Þórdís

2 Kaldir brauðréttir m/rækjum + Kók

Hlín

Rice Crispies kökur, heitur brauðréttur - Kristall

Þórey

 2. heitir brauðréttir (skinkuhorn) + sprite zero

Hófí

Kaldan pastarétt, osta + kex, Kristall plús rauður.

 Steinunn

 Kaldur pastaréttur (borðaður með ristuðu brauði og kaldri sósu)

Kornfleks-marange terta

Sprite Zero

Ingibjörg Rós

 2x bountykökur (kókoskökur) + coca cola light

 

 

 

Eftir tímann á fimmtudaginn kl. 9.30 þurfa allir að hjálpast að við að undirbúa salinn og  gera hann snyrtilegann.

 

Kveðja Hlaðborðsnefndin


» 25 hafa sagt sína skoðun

16.09.2008 14:41:45 / hjúkka

Salan...

..byrjaði með látum í dag. Náðum að selja alveg helling þrátt fyrir að það ættu eftir að fara auglýsingar útá deildarnar. Leggst vel í okkur!!

Kveðja Sonja, Unnur og Tinna 8)

» 3 hafa sagt sína skoðun

11.09.2008 13:57:15 / hjúkka

Hlaðborð


Hlaðborðið verður að öllum líkindum 25. Sept.

Miðað við árið í fyrra ætlum við að reikna með 200 manns á hlaðborðið. Samkvæmt útskriftarlistanum erum við 42 sem ætlum að taka þátt og áætlum við tvo rétti á mann auk einnar flösku af 2L gosi. Ef einhver hefur ekki tök á að koma með rétti þá eru líka aðrir möguleikar í stöðunni t.d. að koma með kaffipakka og fleira.
Á morgun setjum við upp lista þar sem þið getið fyllt út hvað þið ætlið að koma með. Listinn verður þannig að þið getið valið um að koma með heita rétti, kalda  rétti ( pasta, salat, ostar, kex, brauð, brauðtertur, pesto osfrv) eða köku. Þurfum að reyna að hafa samræmi í réttunum og vorum því að spá að hafa 30% af hverjum flokk. Þið þurfið því að miða við það þegar þið merkið inn á listann það sem þið ætlið að koma með (28 kökur, 28 kaldir og 28 heitir).

Endilega ef þið hafið einhverjar aðrar uppástungur að láta vita

Ps. Þeir sem ætla ekki í útskriftarferð en vilja styrkja okkur hin þá eruð þið að sjálfsögðu velkomin að koma með rétti líka og taka þátt í hlaðborðinu ☺

Kv. Hlaðborðsnefnd



» 0 hafa sagt sína skoðun

09.09.2008 22:16:20 / hjúkka

Hittingur á fimmtudag eftir síðasta tíma v/ útskriftarferðar

Hæ hó.
Hittumst öll á fimmtudag kl 12:30 í kennslustofunni til að spjalla um útskriftarferðina, ákveða hvað við viljum selja í styrktarsölunni, heyra nýjar hugmyndir o.fl.
Kaffihlaðborðið er svo komið með dagsetningu....25.september ..... rætt meira á fimmtudag.

Síja alles :)

» 0 hafa sagt sína skoðun


Heimsóknir
Í dag:  25  Alls: 126285
Dagatal
mars - 2010
S M Þ M F F L
123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
28293031
FyrriNæsti